Haldiði ekki bara að það sé komin rigning í Boston! Jú jú ég vaknaði í morgun við hljóðið í rigningunni. Bara yndislegt. Annars er ég að kljást við eitthvað kvef-ógeð, vaknaði í gærmorgunn hnerrandi og uppfull af slími. Ekki eins yndislegt. Sit heima "í íbúðinni minni" í flíspeysu og ullarsokkum í 18 stiga hita.. Hélt að það ætti aldrei eftir að gerast.
Skólinn er kominn á fullt og önnin leggst bara vel í mig. Ég tek 4 kúrsa þessa önnina og mér sýnist sem þetta muni nú verða ágætisvinna! Skilaverkefni, hópaverkefni, skyndipróf, miðannarpróf og lokapróf í öllum kúrsum.. þetta ætti að halda manni við efnið næstu mánuðina! Ég á að skila verkefni í dag og svo er fyrsta prófið á morgun þannig að það er nóg að gera :)
Annars var helgin stórfín. Á föstudaginn fór ég út að borða með 18 félögum úr skólanum. Fórum á frábæran tælenskan stað. Reyndar var Halla svona fashionably late á íslenskan mælikvarða (greinilega ekki á mælikvarða allra hinna) því allir voru búnir að panta og sumir búnir að fá matinn þegar við Kamana og Akki mættum á svæðið. En það skipti svosem engu máli, þjónustan var frábær og við fengum matinn innan nokkurra mínútna. Það sem er þó merkilegast við þetta kvöld er að aldrei áður hef ég farið út að borða með fólki af 13 mismunandi þjóðernum: Bandaríkjunum, Frakklandi, Sviss, Indlandi, Dubai, Nepal, Kína, Kólumbíu, Taiwan, Egyptalandi, Sádí Arabíu, Bangladesh og Tælandi. Mjög skemmtilegt :)
Á laugardaginn var mér boðið í hádegismat til Kamönu. Hún bauð nokkrum vinum sínum í nepalskan mat.. sem er btw alveg rótsterkur en Hallan lét sig hafa það! (Addí: Mashaman á Thai er sko ekkert í samanburðinum!). Um kvöldið kíktum við á klúbb ásamt vinum hennar Kamönu.. alveg stórfínt en ég var komin snemma heim. Sunnudagurinn fór nú bara í þvotta, tiltekt og lærdóm og svo verslaði ég inn. Að fara í búðina hér tekur nú alveg 2 klukkutíma, þær eru svo risa stórar og ég er alltaf að villast inni í þeim. Við förum venjulega í Shaw's sem er súpermarkaður á borð við Hagkaup, þú getur fengið allt þar en downside-ið er að hann er risa stór og ég enda með að finna ekki helminginn af því sem er á listanum mínum.. En þetta lagast nú með tímanum.. vonandi!
Ég verð bara að deila með ykkur einu. Í gærkvöldi var ég að flakka í gegnum þessar 200+ sjónvarpsstöðvar sem ég er með og allt í einu: ABC! Fyrir þá sem ekki vita þá sýnir ABC Grey's Anatomy, Extreme Home Makeover og Oprah.. allt uppáhaldsþættirnir mínir. Og það besta er að nýjar seríur byrja núna í september! veiveivei.. Maður verður nú að fá að taka sér smá frí frá lærdóminum, ekki satt?
Læt fylgja með 2 myndir frá föstudagskvöldinu.
Hnerr og horkveðjur frá Boston..