18.12.07

Bara örstutt blogg. Fyrsti dagur í jólagjafainnkaupum er liðinn veivei.. Fór á Newbury í dag og hitti Rut og íslenska vinkonu hennar. Fórum í lunch, kíktum í búðir og ég keypti nokkrar gjafir. Ætla aftur á morgun en þá verður ferðinni heitið í Gallería moll með Jing.. ohh hlakka til:) Annað kvöld er ferðinni svo heitið á Houston´s með Jing, Sanjivini og vinkonu hennar.. Það verður stuð:)

Annars kláraði ég prófin í gær, gekk bara vel held ég... kemur allt í ljós fljótlega þar sem allar einkunnir ættu að vera komnar í hús fyrir næstu helgi.

Yfir og út..
HK

14.12.07

Halló:)

Þá eru 3 próf búin af 4, gengur mjög hratt fyrir sig þegar maður er í prófum 3 daga í röð! úff.. svo er síðasta prófið á mánudaginn, þá þarf ég reyndar að skila af mér nokkrum klukkutímum í vinnu fyrir prófessorinn minn og svo get ég farið að setja ofan í töskur!! bara gaman:)
Annars hafa prófin gengið bara vel, reyndar hafa þau verið með erfiðara móti en ég ákvað bara að slaka aðeins á kröfunum gagnvart sjálfri mér, annars sæti ég örugglega uppi með eitt stykki hjartaáfall að loknum prófum þar sem ég er nú vön að fá aðeins meira en hálfan dag í lestur fyrir hvert próf. Ég reyndi því bara að gera það besta í stöðunni og nýta tímann eins vel og ég gat. Núna hef ég reyndar 3 daga fyrir næsta próf.. þannig að ég get nú aðeins slappað af um helgina líka:)

Annars hefur dagurinn í dag verið með fróðlegasta móti. Í dag snjóaði nefnilega í Boston. Dáldið mikið.. eiginlega bara svo mikið að það lamaðist allt hérna. Allar samgöngur í lamasessi, fastir bílar, strætóar, lestin gekk ekki nema bara endrum og sinnum. Loka þurfti götum og bílastæðum. Og svo fékk allt starfsfólk skólans (nema nokkrir kennarar) að fara heim upp úr hádegi, ca. 2 tímum eftir að það byrjaði að snjóa. Ástæðan sem var gefin var sú að þeir vildu forða starfsfólkinu frá því að verða veðurteppt í vinnunni. En nemendur (eins og moi) sem voru á leiðinni í skólann seinnipartinn þegar bylurinn var sem mestur voru greinilega ekki í neinni hættu á að verða veðurteppt - eða jafnvel úti - á leiðinni í skólann. Mötuneytunum á campus var lokað (skiljanlega, fólk þarf auðvitað ekkert að borða þegar það snjóar svona mikið). Að labba upp á stoppustöð tók mig 30 mínútur (tekur venjulega 6-7 mínútur) og svo beið ég eftir strætó í tæpan klukkutíma (sem betur fer lagði ég mjög tímanlega af stað.. annars hefði ég komið of seint í prófið!) Á meðan ég beið eftir skólastrætónum horfði ég á ca 30 bíla fasta í umferðarteppu á gatnamótum rétt hjá strætóskýlinu.. allir að tapa sér á flautunni, engum datt í hug að hreyfa sig (þrjóskan uppmáluð!) nema þá kannski einstaka bílstjóri sem steig út úr bílnum sínum til að þurrka snjóinn af framrúðunni... ég gat nú ekki annað en hlegið enda fannst mér þetta alveg ótrúlega súrealískt eitthvað: Hallan, eins og snjómaðurinn ógurlegi með snjóinn fastan í hárinu, með rennandi blautt pennaveski í töskunni, umkringd ameríkönum sem greinilega áttu ekki von á snjókomu í dag íklæddum stuttermabolum og flipflop skóm (enda tær og puttar við það að detta af sýndist mér) að að fylgjast með Boston búum sýna sínar bestu hliðar í umferðinni.. mig langaði mest að taka þá í smá kennslu í 101 Umferðarmenning í snjó.. sýna þeim hvernig á að gera þetta:) heheh þetta var allavega mjög fyndið!
Svo langar mig að óska Fjólu og Bjarka krúttunum mínum tveimur innilega til hamingju með afmælið þann 11. des! Vona að þau hafi nú haft það gott.. þó ég hafi það nú á tilfinningunni að þau hafi verið á fullu í prófum enda svaka duglegir menntskælingar þar á ferð!!

Jæja, ég ætla að skella mér í háttinn...

Adios.. og sjáumst eftir nokkra daga:)

HK

29.11.07

Góðan og blessaðan:)

Jæja, þá eru bara tæpar tvær vikur í að lokaprófin hjá mér hefjist og rétt rúmar þrjár vikur í að ég stígi fæti á íslenska grundu á ný! Ég verð nú að viðurkenna að það er nú farið að kræla á töluverðri tilhlökkun hjá minni:)

Annars fóru mamma og pabbi heim í gær. Að sjálfsögðu tók Boston á móti þeim með fallegu haustveðri og þau fengu beint í æð allt það frábæra sem hægt er að gera hér (að mínu mati sjálfsögðu): Versla, göngutúrar, grand út að borða og fl. og fl. Það var alveg rosalega gott að fá þau í heimsókn og ég vona að þau hafi skemmt sér jafnvel og ég gerði:) Fórum á laugardagskvöldið út að borða á flottasta steikhúsinu í Boston, Capital Grille, á móti okkur tók starfsmaður sem lagði bílnum fyrir okkur og við mamma fengum stærstu nautasteik sem ég hef nokkurn tímann séð (eða eins og pabbi orðaði það svo skemmtilega þegar hann sagði að við mamma deildum einu nauti saman heheheeh). Þau versluðu alveg helling og ég held að mamma hafi keypt allar tegundir af kápum sem fundust í Galleria mollinu!!

Annars er Hallan í þessu glimrandi jólaskapi enda ekki seinna vænna þar sem rétt tæpur mánuður til jóla; jólatréð komið upp og jóladiskurinn með Josh Groban fer bara ekki úr geislaspilaranum. Læt fylgja með nokkrar myndir.

Best að hella sér í lærdóminn...:)

HK

Við mamma fyrir utan skólann minn



Mamma og pabbi í Boston Common




Fína jólatréð mitt:)

19.11.07

Halló:)

Jæja, frábær helgi að baki eftir mjög annasama síðustu viku. Eitthvað gekk nú illa að einbeita sér að lærdómi þessa helgina þannig að ég ákvað bara að gera eitthvað allt annað.. og hvað gerir maður þá? Jú fer að sjá Bollywood mynd!

Fór á föstudaginn með Kamönu, Aki og Sanjivini út að borða og í bíó. Fengum mjög góðan mat á Bengali veitingastað (matur frá Bangladesh). Aldrei smakkað svoleiðis áður og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt! Eftir það fórum við í bíó og þegar maður er í för með tveim indverskum og einni nepalskri þá ræður maður ekki miklu.. Bollywood mynd varð fyrir valinu og vá hvað ég hló mikið þessa þrjá klukkutíma sem við vorum inni í bíósalnum! (jább, ég sagði 3 klst - og ekkert hlé!) Myndin var reyndar mjög fyndin en aldrei á ævinni hef ég séð önnur eins viðbrögð við einni bíómynd. Í bíósalnum voru semsagt ég + 200 Indverjar... og það var klappað, öskrað, stappað, poppkornið flaug um salinn, svo heyrðist ohhhhhh og ahhhhhh frá áhorfendum og það sem mér fannst fyndnast var að þau klöppuðu þegar þeirra uppáhaldsleikarar/leikkonur birtust á skjánum. Mjög fyndið:) Í smárabíói er sussað er á mann ef maður hóstar og ef maður klappar þegar myndin er búin er litið á mann sem eitthvert kúkú! Bottomline: Einstök upplifun að fara á Bollywood mynd en ekki fara ef þið eruð með hausverk, hann mun aðeins magnast í öllum þessum látum! hehe

Á laugardaginn hitti ég svo fólkið í MSF prógramminu, fórum á Malasíuveitingastað (aldrei smakkað það heldur!!) og það var mjöööög svo gott. Matseðillinn reyndar á kínversku eða einhverju asíutungumáli.. en það reddaðist! Eftir það var svo farið á sportspöbb og horft á fótboltalið skólans vinna sinn 9. leik.. og dramatíkin: þeir unnu með touchdown-i tveimur mínútum fyrir leikslok! Ég hélt að allt ætlaði um koll að keyra!! Svo var haldið á klúbb.. mjög gaman:) Læt fylgja með eina sjálfsmynd af yours truly frá skemmtistaðnum, reyndar orðin dáldið sjúskuð eftir nokkra klukkutíma á dansgólfinu!!


Jæja, skólabækurnar eru farnar að öskra á mig, er að fara í próf á eftir í Financial Econometrics.. og svo: Thanksgiving frí!! Vá hvað ég hlakka til.


HK

12.11.07

Daginn daginn:)

Hallan heilsar frá ísköldu Boston.. jú rétt er það.. hér jaðrar við frostmark brrr en mér finnst þetta fínt, minnir dáldið á veðrið heima! Ekkert slæmt sem minnir á Ísland, ha!
Svo er ég komin í svo mikið jólaskap að það hálfa væri nóg! Jóladiskurinn með Baggalúti er spilaður alla daga og mig langar ótrúlega að sjá White Christmas söngleikinn sem er verið að sýna downtown...

Annars var helgin alveg hin fínasta, fór þó að langmestu í lærdóm en þó með smá indversku ívafi. Á föstudaginn var Diwali sem er "Festival of Lights" hjá þeim sem eru hindúatrúar í Indlandi og búddistar í Nepal. Þessi hátíð er í raun eins og jólin okkar:) Af því tilefni var mér boðið í veislu til Kamönu og Sanjivini vinkonu hennar sem voru búnar að elda í tvo heila daga handa okkur gestunum! Svo héldu þær smá athöfn með söng, kveikt á kertum og reykelsum..og svo var borðað og spjallað fram eftir kvöldi!

Í gærmorgun var mér boðið í morgunmat til Aki, hún ákvað að elda ekta indverskan morgunmat/hádegismat.. og chai te..mmm..ótrúlega gott alveg:) Fékk einmitt sms frá henni í gærmorgun kl. hálf 7: "Er að byrja að elda, get ég fengið lánað hjá þér smá sykur?" Btw.. okkur var boðið kl. 12!! Alveg ótrúlegt hvernig þær hafa þolinmæði í margra klukkutíma eldamennsku!

Jæja.. vildi bara rétt láta heyra í mér.. lærdómurinn kallar:)

HK

8.11.07

Kvöldið..

Haldiði ekki bara að Halla hafi fengið sér Sushi að borða í kvöld? Jú jú, við Jing vorum á leiðinni að fá okkur pizzusneið hjá Pino vini okkar eftir skóla þegar við sjáum nokkra skólafélaga okkar inni á nýja posh sushi staðnum sem var verið að opna hérna úti á horni. Ég ákvað að vera hugrakka Halla og slá til enda hingað til verið algjör kjúklingur í þessum efnum. Ég viðurkenni nú alveg fúslega að ég hef smakkað betri mat en samt gaman að hafa prófað þetta. Allavega fannst hinum þetta mjög gott sushi.. ég tek þeirra orð bara trúanleg í þetta skiptið:)

Annars var helgin alveg splendid, Örn Hans frændi var í heimsókn og dáldið shoppað og svona. Fórum út að borða á Houston´s á laugardagskvöldið.. alveg brilliant matur og takk Alice fyrir okkur:) Svo var smá djammað á eftir með stelpunum en að sjálfsögðu allt á rólegu nótunum eins og okkur einum sæmir!

Svo er skólinn bara allur á fullu.. kennararnir keppast við að hlaða á okkur verkefnum og eru nokkur stór verkefni á deadline næstu tvær vikurnar.. en þetta hlýtur að reddast. Thanksgiving á næsta leyti og þá fæ ég nokkra daga frí frá skólanum... veivei..

HK

1.11.07

Góðan dag, góðan dag

Gerist morgunmatur íslenskari en einmitt sá sem ég er að borða núna? skyr og flatkökur? ójá.. uppáhaldsmorgunmaturinn minn hérna úti:)

Annars er bara allt fínt að frétta. Einkunnirnar úr prófunum búnar að skila sér í hús og Hallan bara þokkalega sátt. Nú er ég á fullu í verkefnavinnu og verð næstu vikuna.. og reyni að sinna öllu hinu sem fékk að sitja á hakanum: þvo þvotta, þrífa, sinna vinunum etc etc.

Svo er stanslaus gestagangur hjá mér.. ekki leiðinlegt það! Addí og Geiri nýfarin heim, Örn frændi að koma á morgun og mamma og pabbi koma á Thanksgiving og verða í tæpa viku:)

Annars er aðeins farið að kólna hérna úti.. loksins orðið eðlilegt hitastig fyrir Íslendinginn í mér.. Akki og Kamana eru að krókna því 10 gráðu hiti er nú ekki daglegt brauð í Nepal og Dubai! Þær urðu nú skrítnar í framan þegar ég sagði þeim að 10 gráður væri nú bara týpískur sumarhiti á Íslandi!! heheheeh

Jæja, busy dagur framundan: þvo tvær vélar, elda hádegismat (ójá elda: ég er byrjuð á því aftur!!) og svo hópahittingur á campus kl. 4.

Yfir og út.
HK

23.10.07

Kvöldið...

Þá er ég loksins búin með þriðja og síðasta prófið.. og ég lofa, ég skal ekki tala meira um próf.. amk ekki þangað til í desember! Ég sit heima og horfi á fréttirnar, miklar skógareldar í San Diego og Schwartsenegger með yfirlýsingar í fréttunum. Red Sox komnir í World Series. Þetta eru highlight dagsins í Ameríkunni.
Þegar maður er í prófum er ótrúlegt hvað huganum tekst alltaf að reika eitthvað annað. Um daginn fór ég að hugsa um hvað lífið hefur breyst mikið hjá mér síðustu vikurnar.. ekki langt síðan vinnan í LSR og kennslan í HR tók nánast allan minn tíma. Sem dæmi um drastískar breytingar (fyrir utan nýjan skóla, nýtt húsnæði, nýja heimsálfu etc..):

Hallan er orðin mikill aðdáandi almenningssamgangna. Hún sem hafði ekki stigið fæti í strætó síðan hún fékk bílpróf. Eins og ég elskaði bílinn minn út af lífinu þá er alveg ótrúlegt hversu gott er að nota bara strætó, lestina og leigubíla stökum sinnum.. og líka miklu ódýrara!

Hallan eldar ekki lengur. Hún sem eeeelskaði að elda og gerði það amk. þrisvar í viku áður en hún kom út. Það er margt sem veldur: Ódýrara að fara út að borða og svo er alveg óstjórnlega leiðinlegt að elda bara fyrir einn. Helsta ástæðan er þó held ég sú að ég er í skólanum á kvöldin þannig að ef ég ætla að elda þá þarf ég að gera það í hádeginu eða um helgar... Ég ætla þó að reyna að bæta úr þessu enda komin með fullt af góðum uppskriftum eftir að hafa horft á Giada í Everyday Italian á Food Channel síðustu daga!

Hallan er orðin ótrúlega stundvís. Jú þið lásuð rétt, hún sem var alltaf fashionably late er bara orðin púnktúal... Hef aldrei mætt of seint í skólann, hef baaaara einu sinni mætt of seint í hitting í skólanum (af trilljón hittingum!) og einu sinni of seint út að borða.. that´s it! Klapp klapp! Frábær árangur á rúmum tveimur og hálfum mánuði!

Hallan er orðin algjör nískupúki. Sem dæmi má nefna að 10 dollarar (600 kall) í mat er okur. Samloka á Vegamótum heima kostar 1200 kall og ekki setti maður það fyrir sig forðum daga. Ég kemst af heilu dagana á nokkrum hundraðköllum.. þetta er ótrúlegt!

Jæja.. farin í háttinn.. geisp

nætí næt
HK

22.10.07

Jæja, kominn tími á blogg.. en vá hvað þetta er búin að vera skemmtileg helgi.. og reyndar alveg ótrúlega löng líka!! Byrjaði á fimmtudagskvöldinu en við Jing fórum á hverfispöbbinn okkar Roggies eftir prófið.. hringdum í nokkra aðila og eftir korter vorum við orðin um 10 talsins! Fengum okkur nachos og bjór og spjölluðum og svo var ég á leiðinni heim rétt fyrir miðnætti þegar hún Kamana vinkona mín birtist á Roggies ásamt vinkonu sinni en þá voru aðeins nokkrar mínútur í 24 ára afmælið hennar Kamönu. Við héldum því aðeins upp á það og ég fór því ekki alveg strax heim:)
Á föstudeginum þurfti ég aðeins að útréttast upp í skóla, kom svo við á Pinos á leiðinni og heim og sótti mér bestu pizzusneið í heimi, föndraði afmæliskort og kórónu fyrir afmælið um kvöldið og horfði á Food Channel sem er uppáhaldsstöðin mín hérna (hversu frábært er það að geta horft á matreiðsluþætti 24/7??). Svo var haldið út í Whole Foods og þar sem keyptir voru ostar og fleira gott og svo bjó Hallan til þessa flottu ostabakka fyrir afmælispartýið hennar Kamönu um kvöldið. Partýið var algjör snilld, og á eftir var farið í annað partý og svo þaðan niðrí bæ. Ég hendi myndum inn fljótlega..
Vaknaði alveg eeeeeldsnemma á laugardagsmorgninum, þreif íbúðina og lærði fyrir prófið sem ég er að fara í á morgun. Um kvöldið kom Jing og eldaði kínverskan mat hérna í íbúðinni minni og við buðum nokkrum studygroup-buddíum að koma að borða og horfa á Red Sox leik sem var í gangi.. rosa stuð:) Já þetta er búið að vera helgi í lagi enda komi tími á að lyfta sér aðeins upp eftir allan lærdóminn síðustu vikurnar!!!
Á morgun er próf í financial econometrics sem eiginlega blanda af fjármálum og tölfræði - eitthvað sem Halla á nú alveg að geta reddað sér í eftir alla kennsluna í HR. Ég ætla að reyna að ná eins og tveimur klukkutímum í lærdóm áður en ég fer í háttinn..

Já annað: Halloween er hérna í USA þann 31. október.. ég var ekkert smá farin að hlakka til - fyrsta og örugglega eina skiptið sem ég verð hérna á Halloween en hvað haldiði? ÉG ER AÐ FARA Í PRÓF ÞAÐ KVÖLD! þannig að það verður nú ekki mikið trick or treat á þessum bænum!! Bara fúlust...

Yfir og út:)

17.10.07

Jæja.. búin í prófinu ógurlega. Var nú reyndar nær dauða en lífi þegar ég kom út þar sem einhverjum snillingnum datt í hug að hækka hitann all verulega inni í skólastofunni.. úff.. og svo ætlaði ég aldrei að vilja skila prófinu, vildi bara helst taka það með mér heim og klára það þar! Overall gekk þetta bara ágætlega.. engin tía samt þarna á ferð!!
Næsta próf er á fimmtudaginn og ég ætlaði að byrja að læra þegar ég kæmi heim úr prófinu.. glætan það var nú ekki alveg að gera sig! Sit hérna á ljóta sófanum mínum og glápi á imbann (ég þarf nú eiginlega að taka mynd af þessum sófa og pósta á netið - hann fær alveg nú alveg verðlaun fyrir ljótheit.. og óþægilegiheit reyndar líka ef út í það er farið!!). Ég er komin með nýjan upáhaldsþátt þar sem allir gömlu uppáhaldsþættirnir mínir eru í sjónvarpinu þegar ég er í skólanum. Nýi þátturinn heitir LA Ink og fjallar um tattú stofu í LA og alla kreisí fólkið sem fer og fær sér tattú þar.. já ég veit að þetta hljómar frekar fjarstæðukennt að ég sé húkkt á þætti um tattústofu.. ég sem er alveg ógó hrædd við nálar.. en svona erettabara!!

Held ég fari að drífa mig í háttinn... þarf að vakna snemma þar sem ég beilaði á að læra í kvöld:)

HK

12.10.07

Heil og sæl

Boston er búin að vera ansi blaut í dag, rok og rigning a la Ísland.. ég tók regnhlífina með mér í skólann og ég hélt að ég myndi bara takast á loft. Jing vinkona mín sem var samferða mér í skólann fékk þarna beint í æð af hverju Íslendingar nota yfirleitt ekki regnhlífar í íslenskri rigningu!!

Annars var ég að koma úr Investments tíma. Kennarinn er alveg frábær, ca. fimmtugur einhleypur kall, eldrauður í framan og mætir yfirleitt með skræpótt bindi í tíma. Hann segir okkur endalausar sögur og tekst einhvernveginn alltaf að flétta námsefninu inn í þær. Í hverjum tíma fáum við heyra af því hversu frábært 50" sjónvarpið hans sé og að eina Mrs. Barry í hans lífi sé mamma hans.. bara fyndinn kall!!

Annars er bara allt gott að frétta. Fór í próf í gær sem gekk bara vel. Svo er próf á þriðjudaginn og annað á fimmtudaginn í næstu viku. Er reyndar með smá hnút í maganum yfir þriðjudagsprófinu þar sem efnið er MJÖG þungt en við vonum bara það besta - verð bara dugleg að læra um helgina! Krakkarnir í studygrúppunni minni sem ég hitti í hverri viku voru að tala um að líta aðeins upp úr bókunum um helgina og gera eitthvað saman.. ég sagði bara pass og sagðist ætla að læra um helgina. Þá fékk ég spurninguna: Are you really gonna study for three whole days? Dah Yes! Þeim fannst ég eitthvað galin :) Kannski er þetta bara ég en ég fer ekki í mollin eða í bíó með tvö próf hangandi yfir mér...

Svo langaði mig bara að óska henni Ólöfu vinkonu minni til hamingju með 20+ ára afmælið um síðustu helgi. Ég keypti handa þér afmælisköku en ákvað bara að borða hana sjálf í staðinn fyrir að senda hana heim...

Og Ernir Daði: til hamingju með flotta nafnið þitt! Það verður nú samt skrítið að kalla þig ekki litlakúts lengur:) Þú sendir kveðjur á gamla settið og óskar þeim til hamingju með frábært val á nafni!

Jæja... ég ætla að horfa á síðustu mínúturnar af Pretty Woman. Lokaatriðið þegar hann klifrar upp brunastigann með blómin... ahhh.. bara æði:)

HK

8.10.07

Hæ hó

Við systurnar og Geiri sitjum hérna uppgefin eftir að hafa pakkað niður um 100 kílóum af farangri ofan í töskur.. jú þið lásuð rétt, Addí og Geira tókst að kaupa ríflega 100 kíló af fötum, skóm, snyrtivörum, skarti og búsáhöldum... gvöð hvað ég er fegin að þurfa ekki að bera töskurnar þeirra niður fjórar hæðir á morgun!!!! Þau eru að fara á morgun (grenj) þannig að næstu dagar eiga eftir að verða einmannalegir hjá mér. Það er nú kannski allt í lagi þar sem fjölmörg verkefni bíða eftir mér. Í næstu viku byrja hjá mér miðannarprófin og svo þarf ég að vera dugleg að vinna fyrir styrknum mínum á næstunni þar sem ég er loksins búin að fá úthlutað verkefni. Það var nú reyndar ekki af verri endanum: Ég á að aðstoða prófessorinn í Financial Econometrics, prófarkalesa námsefnið hans og búa til skilaverkefni! Dáldið fyndið þar sem ég sit þennan kúrs sjálf.. en við sjáum hvernig þetta gengur:)

Annars eru síðustu vikur búnar að vera alveg frábærar enda alveg rosalega gaman að fá fólk í heimsókn og fá að sýna þeim borgina... og ótrúlegt en satt hafa síðustu vikur líka verið frábærar fyrir debetkortið mitt! Mér tókst að halda að mér höndum og versla aðeins ítrustu nauðsynjar (jújú, við köllum föt og fylgihluti nauðsynjar ef þau eru keypt í hæfilegu magni!). Búin að fara 3 ferðir í target, 3 ferðir í Galleria moll og óteljandi ferðir niðrí miðbæ síðstu 2 vikurnar, ekki leiðinlegt það!

Jæja, við ætlum að fara út og fá okkur eitthvað að borða... allir orðnir svangir eftir nokkurra klukkutíma pakkerí!

Leiter

20.9.07

Hæhæ

Þá er þriðja skólavikan nánast á enda (jiminn hvað þetta líður hratt!) og ég ætti að vera að læra en einhvern veginn tekst mér að gera allt annað. Ganga frá þvotti, spjalla á msn og horfa á spjallþáttinn með Ellen sem er orðinn uppáhaldsþátturinn minn hérna úti!

Eftir slétta viku koma vinkonur mínar úr LSR í heimsókn (Innrásin mikla eins og við köllum það) hingað í Ameríkuhrepp. Mér skilst á þeim að þær ætli að láta til sín taka í búðunum þannig að kannski ég fari að hafa samband við mollin og biðji þau að fylla á allar hillur og rekka!! Eftir tvær vikur koma Addí og Geiri til mín! Ohh hvað ég er farin að hlakka til... Skemmtilegir tímar framundan :)

Annars eru stelpurnar að tala um að fara í kariókí í kvöld. Ég segi nú bara pass enda er röddin mjög rám eftir allt kvefið undanfarna daga. Kannski ég taki bara Joe Cocker á þetta?

Yfir og út..

11.9.07

Daginn daginn daginn :)

Haldiði ekki bara að það sé komin rigning í Boston! Jú jú ég vaknaði í morgun við hljóðið í rigningunni. Bara yndislegt. Annars er ég að kljást við eitthvað kvef-ógeð, vaknaði í gærmorgunn hnerrandi og uppfull af slími. Ekki eins yndislegt. Sit heima "í íbúðinni minni" í flíspeysu og ullarsokkum í 18 stiga hita.. Hélt að það ætti aldrei eftir að gerast.

Skólinn er kominn á fullt og önnin leggst bara vel í mig. Ég tek 4 kúrsa þessa önnina og mér sýnist sem þetta muni nú verða ágætisvinna! Skilaverkefni, hópaverkefni, skyndipróf, miðannarpróf og lokapróf í öllum kúrsum.. þetta ætti að halda manni við efnið næstu mánuðina! Ég á að skila verkefni í dag og svo er fyrsta prófið á morgun þannig að það er nóg að gera :)

Annars var helgin stórfín. Á föstudaginn fór ég út að borða með 18 félögum úr skólanum. Fórum á frábæran tælenskan stað. Reyndar var Halla svona fashionably late á íslenskan mælikvarða (greinilega ekki á mælikvarða allra hinna) því allir voru búnir að panta og sumir búnir að fá matinn þegar við Kamana og Akki mættum á svæðið. En það skipti svosem engu máli, þjónustan var frábær og við fengum matinn innan nokkurra mínútna. Það sem er þó merkilegast við þetta kvöld er að aldrei áður hef ég farið út að borða með fólki af 13 mismunandi þjóðernum: Bandaríkjunum, Frakklandi, Sviss, Indlandi, Dubai, Nepal, Kína, Kólumbíu, Taiwan, Egyptalandi, Sádí Arabíu, Bangladesh og Tælandi. Mjög skemmtilegt :)
Á laugardaginn var mér boðið í hádegismat til Kamönu. Hún bauð nokkrum vinum sínum í nepalskan mat.. sem er btw alveg rótsterkur en Hallan lét sig hafa það! (Addí: Mashaman á Thai er sko ekkert í samanburðinum!). Um kvöldið kíktum við á klúbb ásamt vinum hennar Kamönu.. alveg stórfínt en ég var komin snemma heim. Sunnudagurinn fór nú bara í þvotta, tiltekt og lærdóm og svo verslaði ég inn. Að fara í búðina hér tekur nú alveg 2 klukkutíma, þær eru svo risa stórar og ég er alltaf að villast inni í þeim. Við förum venjulega í Shaw's sem er súpermarkaður á borð við Hagkaup, þú getur fengið allt þar en downside-ið er að hann er risa stór og ég enda með að finna ekki helminginn af því sem er á listanum mínum.. En þetta lagast nú með tímanum.. vonandi!

Ég verð bara að deila með ykkur einu. Í gærkvöldi var ég að flakka í gegnum þessar 200+ sjónvarpsstöðvar sem ég er með og allt í einu: ABC! Fyrir þá sem ekki vita þá sýnir ABC Grey's Anatomy, Extreme Home Makeover og Oprah.. allt uppáhaldsþættirnir mínir. Og það besta er að nýjar seríur byrja núna í september! veiveivei.. Maður verður nú að fá að taka sér smá frí frá lærdóminum, ekki satt?

Læt fylgja með 2 myndir frá föstudagskvöldinu.




Hnerr og horkveðjur frá Boston..

1.9.07

Góðan og blessaðan..

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég skrifaði hér síðast. Fyrir það fyrsta er "orientation-ið" í skólanum loks á enda. Deginum í dag eyddum við úti í Thompson-eyju sem er í 20 mín fjarlægð frá Boston. Þangað sigldum við kl. 7:30 í morgun og fórum í leiki, klettaklifur og leystum alls konar þrautir sem eiga að gera okkur betur undirbúin fyrir hópavinnuna í skólanum. Halla kom ansi sólbrennd til baka og það kom mér í raun á óvart að ég skyldi brenna þar sem ég hef nánast sloppið við það frá því ég kom hingað! Á þriðjudaginn síðasta var "útlendingagrill" á vegum alþjóðaskrifstofu skólans og á miðvikudaginn fór ég í klukkutímasiglingu úti fyrir ströndum Boston sem er á vegum sömu samtaka, það var alveg frábært og kom skemmtilega á óvart hvað Boston er falleg borg séð af hafi úti.

Á morgun er fyrsti fótboltaleikur BC og Halla að sjálfsögðu búin að næla sér í season tickets! Með fótbolta á ég við "football" en ekki "soccer". Ég veit varla út á hvað leikurinn gengur en það skiptir ekki öllu máli, heldur að styðja sitt lið með tilheyrandi búningum, hrópum og köllum! Húllumhæið hefst á hádegi og leikurinn um miðjan dag. BC á víst að vera með mjög gott lið í háskólafótboltanum en það kemur allt í ljós á morgun. Á sunnudaginn ætlum við Kamu og Akki að halda matarborð fyrir 10 félaga okkar í skólanum. Á boðstólnum verður indverskur matur sem Akki ætlar að elda. Ég lofa að skella inn myndum eftir helgi.

Annars er bara allt gott að frétta. Ég er búin að hitta flesta þá sem eru með mér í MSF náminu. Þetta er ca. 25 manna hópur á aldrinum 24 - 39, alls staðar að úr heiminum og ca. 1/3 eru Kanar. Námið leggst bara vel í mig og er fyrsti "alvöru" skóladagurinn á miðvikudaginn næsta. Þá verður nú ekkert aftur snúið og vinnan hefst að alvöru.. en ég er farin að hlakka til enda búin að fá alveg nóg af samhristingsprógramminu sem er búið að vera síðustu 3 vikurnar!

Hitinn er ennþá að pirra mig og ég þakka guði á hverjum degi fyrir þann sem fann upp loftræstikerfi og viftur enda hefur þetta tvennt nánast bjargað lífi mínu síðustu daga. Reyndar er eitt jákvætt sem fylgir svona miklum hita: besti staðurinn til að eyða +30 gráðu dögum er inni í mollunum því þar er besta loftræstingin.. og ekki líður Höllu illa inni í mollunum, ónei!

23.8.07

Jæja, þá fer að líða að lokum annarrar viku í skólanum. Ég var dálítið þreytt í skólanum í dag þar sem ég fór á Publick House í gærkvöldi að hitta aðra MSF, MBA og MSA nema. Ég hitti alveg helling af nýju fólki þar sem fullt af amerískum nemum voru mættir á staðinn. Ég fór með Akki og Kamönu, var reyndar á leiðinni í háttinn þegar þær bönkuðu upp á hjá mér og drógu mig fram úr! Mjög gaman og var komin heim rétt fyrir miðnætti (sem er kannski ekkert svo slæmt nema þegar maður þarf að vakna kl. 6 til að ná strætó í skólann!). Hérna í BC eru pöbbakvöld á miðvikudögum.. til þess að halda upp á það að vikan er hálfnuð! Skil nú ekki alveg af hverju verið er að halda upp á það þar sem miklu lógískara væri að hafa þau á föstudagskvöldum þegar skólavikan er á enda! Svona er kaninn skrítinn...

Ólöf vinkona fór heim í gær :( Rosa gott að hafa hana, sérstaklega til að bera allan farangurinn og alla Target pokana upp á 4. hæð! Hún var reyndar mjög dugleg að versla sjálf og fór heim með ansi mikla yfirvigt.. Svona er að koma til Boston, alveg ótrúlegt hvað er hægt að eyða hérna!

Jæja, ég ætla að reyna að læra smá fyrir morgundaginn.. að lokum eru nokkrar myndir frá Boston:


Ég fyrir framan skólann minn:)

Húsið sem ég bý í.
Kamana (t.v.) og Akki (t.h.)




18.8.07

Jæja, þá er fyrsta skólavikan að baki. Aldrei á ævinni hef ég þurft að halda jafn margar "presentations" á jafn skömmum tíma og í þessu blessaða útlendingaprógrammi sem skólinn skikkar okkur til að mæta í. Síðustu vikuna er ég búin að tala um allt mögulegt: Sjálfa mig, framtíðaráform, hvernig ég vil að mín sé minnst, etc. Þá er ég búin að halda kynningar um tvo bekkjarfélaga, segja frá því hvernig ég myndi koma fram í atvinnuviðtali, lesa tvær tímaritsgreinar og halda 5 mín. fyrirlestur um hvora og að lokum kynntum við hópurinn minn lokaverkefnið okkar í morgun: 20 mín kynning á Boston Consulting Group sem er ráðgjafafirma hérna í Boston. Úfff.. og þetta er fyrir utan alla málfræðina, stafsetningu, ritgerðir og fleira sem við erum búin að gera í vikunni. Þeir sem þekkja mig vita nú að "public presentations" er nú ekki það skemmtilegasta sem ég geri! Mikið er ég farin að hlakka til að komast í fjármálakúrsana sem ég er skráð í þessa önnina þar sem Hallan kann miklu betur við sig með reiknivél og blýant í hönd! Þetta er þó búið að vera mjög gaman, ögrandi og fróðlegt enda er fólkið í hópnum mínum alls staðar að úr heiminum og alls ekkert feimið við að tala um, gagnrýna og rökræða menningarmismun þjóðanna.

Annars er allt farið að ganga sinn vanagang og mér finnst í raun ótrúlegt að ég sé bara búin að vera hérna í tvær vikur. Íbúðin er að komast í stand þó svo að veggirnir séu nú frekar tómir. Við erum nokkur í bekknum á leiðinni í Target í fyrramálið (uppáhaldsbúðin mín í öllum heiminum!) og þá ætti ég að geta klárað innkaupin.

Annars er búið að vera alveg óbærilega heitt hérna. Í gærkvöldi mældist hitinn rúmlega 30 gráður kl. 8! Þetta er ekki eðlilegt.. enda fá vifturnar alveg að vinna fyrir kaupinu sínu! Ég vona þó að þetta fari að lagast fljótlega og mér sýnist veðurspáin vera á þá leið að hitinn verði um 20 gráður næstu daga..

Jæja, segjum þetta gott að sinni..
HK

p.s. ég er að vinna í að koma nýjum myndum á netið, þið getið séð myndir frá Bostonarferðinni okkar Addíar í apríl undir Myndir.

14.8.07

Jeremías og heilagur Þorlákur! Að búa uppi á 4. hæð í húsi með engri loftkælingu í yfir 30 gráðu hita er ekkert grín. Svo ég byrji nú á byrjuninni þá erum við Ólöf aldeilis búnar að taka á honum stóra okkar frá því við komum. Ég fékk íbúðina mína afhenta laugardaginn 4. ágúst. Þetta er fínasta íbúð, á 4. hæð eins og áður sagði og mjög vel staðsett. Hátt til lofts og vítt til veggja, stórt og gott svefnherbergi, fín sturta og ekkert til að kvarta yfir. Aðeins örfá skref í lestina sem fer niðrí miðbæ og stutt í strætó sem ég tek í skólann. Kálfavöðvarnir mínir hafa þó aldeilis fengið að finna fyrir því undanfarið því ekki nóg með að við þyrftum að bera upp allan farangurinn okkar, þá erum við búnar að fara tvær ferðir í Target, ein í Bed, Bath and Beyond nokkrar ferðir downtown og ein í Best Buy þar sem Halla keypti sér FlatScreen sjónvarp! Stórglæsilegt svart háglans Sharp tæki með innbyggðum dvd spilara, ég held að þau gerist nú ekki flottari á markaðnum :)

Svo ég segi nú aðeins frá skólanum þá var annar dagurinn í dag. Búið er að skipta okkur útlendingunum í MSF, MSA og MBA náminu upp í hópa eftir ritgerðarpróf og munnlegt próf sem við fórum í á föstudaginn og lenti Hallan í "most advanced" hópnum. Hvernig stendur á því veit ég nú ekki alveg þar munnleg próf hafa nú aldrei verið mín sterkasta hlið. Á föstudaginn kynntist ég fullt af fólki, sat til borðs í hádeginu með 12 kínverjum, það var mjög áhugavert! Í dag kynntist ég betur fólkinu í hópnum mínum: Putja og Simran frá Indlandi, Aksjatar frá Dubai, Kamana frá Nepal (sem einmitt býr í stigaganginum mínum), einn frá Búlgaríu, einn frá Kólumbíu, tveir Sádi Arabar, ein stelpa frá Egyptalandi, einn frá Indlandi og einn frá Suður-Kóreu. Við Putja, Simran og Aksjatar erum saman í verkefni sem er á deadline á fimmtudaginn (fyrsta vikan og strax farið að hamra á okkur!) Flest þeirra eru að taka master í reikningshaldi (MSA) en við vorum nokkur í MSF prógramminu í mínum hóp.

Ég verð nú að deila með ykkur einni aulasögu af mér. Undanfarna viku hef ég verið að reyna að komast á netið hérna í íbúðinni minni en ekki gengið sem skyldi. Ég er búin að reyna nánast allt en loksins í kvöld náði ég í gegn í hjálparlínu ComCast sem er þjónustufyrirtækið fyrir internetið í húsinu. Ég lenti á svona rosalega indælum og þolinmóðum manni sem var mjög skilningsríkur gagnvart Höllu sem þekkir ekki mun á mótaldi og router, internet köplum og símasnúrum. En allavega þá reyndum við í klukkutíma að reyna að fá routerinn minn til að virka en ekkert gekk. Að lokum sættumst við á að hann myndi senda mann til mín í vikunni til að kíkja á snúrufarganið á gólfinu hjá mér. Ef það myndi ekki ganga þyrfti ég að tala við Microsoft og fá þá til að kíkja á Windows Visa í nýju tölvunni minni. Ég ákvað þó að banka upp á hjá henni Kömönu sem býr hérna í stigaganginum mínum þar sem hennar internet fór að virka í dag og hún kíkti á þetta með mér. Hún labbar inn, lítur á routerinn og segir: "There is supposed to be a green light on the machine". Haldiði ekki að hún Halla hafi gleymt að kveikja á routernum! Dísus.. það er búið að taka marga daga að fá þetta til að virka.. og eina sem þurfti að gera var að ýta á POWER.

Þangað til næst...

HK

28.7.07

Þá er Boston á næsta leyti. Tæp vika í brottför og undirbúningur í fullum gangi. Búin að taka fram ferðatöskurnar, áritunin komin í vegabréfið, búin að panta tölvu og byrjuð að pakka. Ótrúlegt hvað svona ferð krefst mikils undirbúnings, ég er búin að vera á haus síðustu vikurnar! Ókei, "á haus" er kannski aðeins orðum ofaukið en þetta er allt saman búið að taka miklu meiri tíma en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér. Í rauninni hófst undirbúningur fyrir rúmu ári síðan. Finna skóla/prógrömm. Læra fyrir próf. Taka próf. Skoða skóla. Fylla út skólaumsóknir og skrifa ritgerðir. Skrifa fleiri ritgerðir. Sækja um styrki. Úff..

Góðar fréttir: ég náði loksins sambandi við Graduate Housing deildina í BC. Ég fæ íbúðina afhenta 4. ágúst! Ólöfu vinkonu létti allavega mikið við þessar fréttir þar sem hún var alveg viss um að við myndum þurfa að sofa á bekk í Boston Common fyrstu vikuna þar sem erfitt reyndist að finna hótel í Boston undir USD 300 á nóttina með svo stuttum fyrirvara.

Ég ætla að pósta fréttum af mér inn á þessa síðu. Ég lofa því þó ekki að þær muni skila sér hingað hratt og örugglega en ég ætla að gera mitt besta.. og það er bannað að skamma mig ef ég er ekki að standa mig í stykkinu :)

Farin í háttinn. Nætí næt.