14.8.07

Jeremías og heilagur Þorlákur! Að búa uppi á 4. hæð í húsi með engri loftkælingu í yfir 30 gráðu hita er ekkert grín. Svo ég byrji nú á byrjuninni þá erum við Ólöf aldeilis búnar að taka á honum stóra okkar frá því við komum. Ég fékk íbúðina mína afhenta laugardaginn 4. ágúst. Þetta er fínasta íbúð, á 4. hæð eins og áður sagði og mjög vel staðsett. Hátt til lofts og vítt til veggja, stórt og gott svefnherbergi, fín sturta og ekkert til að kvarta yfir. Aðeins örfá skref í lestina sem fer niðrí miðbæ og stutt í strætó sem ég tek í skólann. Kálfavöðvarnir mínir hafa þó aldeilis fengið að finna fyrir því undanfarið því ekki nóg með að við þyrftum að bera upp allan farangurinn okkar, þá erum við búnar að fara tvær ferðir í Target, ein í Bed, Bath and Beyond nokkrar ferðir downtown og ein í Best Buy þar sem Halla keypti sér FlatScreen sjónvarp! Stórglæsilegt svart háglans Sharp tæki með innbyggðum dvd spilara, ég held að þau gerist nú ekki flottari á markaðnum :)

Svo ég segi nú aðeins frá skólanum þá var annar dagurinn í dag. Búið er að skipta okkur útlendingunum í MSF, MSA og MBA náminu upp í hópa eftir ritgerðarpróf og munnlegt próf sem við fórum í á föstudaginn og lenti Hallan í "most advanced" hópnum. Hvernig stendur á því veit ég nú ekki alveg þar munnleg próf hafa nú aldrei verið mín sterkasta hlið. Á föstudaginn kynntist ég fullt af fólki, sat til borðs í hádeginu með 12 kínverjum, það var mjög áhugavert! Í dag kynntist ég betur fólkinu í hópnum mínum: Putja og Simran frá Indlandi, Aksjatar frá Dubai, Kamana frá Nepal (sem einmitt býr í stigaganginum mínum), einn frá Búlgaríu, einn frá Kólumbíu, tveir Sádi Arabar, ein stelpa frá Egyptalandi, einn frá Indlandi og einn frá Suður-Kóreu. Við Putja, Simran og Aksjatar erum saman í verkefni sem er á deadline á fimmtudaginn (fyrsta vikan og strax farið að hamra á okkur!) Flest þeirra eru að taka master í reikningshaldi (MSA) en við vorum nokkur í MSF prógramminu í mínum hóp.

Ég verð nú að deila með ykkur einni aulasögu af mér. Undanfarna viku hef ég verið að reyna að komast á netið hérna í íbúðinni minni en ekki gengið sem skyldi. Ég er búin að reyna nánast allt en loksins í kvöld náði ég í gegn í hjálparlínu ComCast sem er þjónustufyrirtækið fyrir internetið í húsinu. Ég lenti á svona rosalega indælum og þolinmóðum manni sem var mjög skilningsríkur gagnvart Höllu sem þekkir ekki mun á mótaldi og router, internet köplum og símasnúrum. En allavega þá reyndum við í klukkutíma að reyna að fá routerinn minn til að virka en ekkert gekk. Að lokum sættumst við á að hann myndi senda mann til mín í vikunni til að kíkja á snúrufarganið á gólfinu hjá mér. Ef það myndi ekki ganga þyrfti ég að tala við Microsoft og fá þá til að kíkja á Windows Visa í nýju tölvunni minni. Ég ákvað þó að banka upp á hjá henni Kömönu sem býr hérna í stigaganginum mínum þar sem hennar internet fór að virka í dag og hún kíkti á þetta með mér. Hún labbar inn, lítur á routerinn og segir: "There is supposed to be a green light on the machine". Haldiði ekki að hún Halla hafi gleymt að kveikja á routernum! Dísus.. það er búið að taka marga daga að fá þetta til að virka.. og eina sem þurfti að gera var að ýta á POWER.

Þangað til næst...

HK

6 ummæli:

ernis sagði...

guð minn góður, það hefur oft borgað sig að kveikja á græjum til að geta notað þær!

4 hæðir upp, fjör hjá þér, bara minningar frá grensásveginum hrannast upp við að heyra svona

Nafnlaus sagði...

Hæjj bestust=) Þú dúxar í gaggó, versló og HÁSKÓLA ÍSLANDS og fattar ekki að ýta á power :'D algjört gullkorn :D en það virðist bara gaman hjá þér =) og gangi þér vel (K) Fjölsk biður að heilsa =) bæj

Nafnlaus sagði...

Hæ Halla gaman að heyra í þér. Kveðja amma.

Nafnlaus sagði...

Halla mín bara prófa er að kenna Guðrúnu !!!

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís,
Hehehe,alltaf gott að hafa kveikt á græjunum ;-)
Langaði bara að kasta á þig kveðju skvís,gaman að fá að fylgjast með þér í Ameríkunni.
Knús og kveðja
Inga Garðars

Nafnlaus sagði...

Elsku Halla, sú nafnlausa er ég .
Fjóla kenndi mér og ég var að reyna að henna G.Vona að allt gangi vel .Skrifa aftur á morgun þá verður mamma þín og Guðrún hér
bless bless amma