18.8.07

Jæja, þá er fyrsta skólavikan að baki. Aldrei á ævinni hef ég þurft að halda jafn margar "presentations" á jafn skömmum tíma og í þessu blessaða útlendingaprógrammi sem skólinn skikkar okkur til að mæta í. Síðustu vikuna er ég búin að tala um allt mögulegt: Sjálfa mig, framtíðaráform, hvernig ég vil að mín sé minnst, etc. Þá er ég búin að halda kynningar um tvo bekkjarfélaga, segja frá því hvernig ég myndi koma fram í atvinnuviðtali, lesa tvær tímaritsgreinar og halda 5 mín. fyrirlestur um hvora og að lokum kynntum við hópurinn minn lokaverkefnið okkar í morgun: 20 mín kynning á Boston Consulting Group sem er ráðgjafafirma hérna í Boston. Úfff.. og þetta er fyrir utan alla málfræðina, stafsetningu, ritgerðir og fleira sem við erum búin að gera í vikunni. Þeir sem þekkja mig vita nú að "public presentations" er nú ekki það skemmtilegasta sem ég geri! Mikið er ég farin að hlakka til að komast í fjármálakúrsana sem ég er skráð í þessa önnina þar sem Hallan kann miklu betur við sig með reiknivél og blýant í hönd! Þetta er þó búið að vera mjög gaman, ögrandi og fróðlegt enda er fólkið í hópnum mínum alls staðar að úr heiminum og alls ekkert feimið við að tala um, gagnrýna og rökræða menningarmismun þjóðanna.

Annars er allt farið að ganga sinn vanagang og mér finnst í raun ótrúlegt að ég sé bara búin að vera hérna í tvær vikur. Íbúðin er að komast í stand þó svo að veggirnir séu nú frekar tómir. Við erum nokkur í bekknum á leiðinni í Target í fyrramálið (uppáhaldsbúðin mín í öllum heiminum!) og þá ætti ég að geta klárað innkaupin.

Annars er búið að vera alveg óbærilega heitt hérna. Í gærkvöldi mældist hitinn rúmlega 30 gráður kl. 8! Þetta er ekki eðlilegt.. enda fá vifturnar alveg að vinna fyrir kaupinu sínu! Ég vona þó að þetta fari að lagast fljótlega og mér sýnist veðurspáin vera á þá leið að hitinn verði um 20 gráður næstu daga..

Jæja, segjum þetta gott að sinni..
HK

p.s. ég er að vinna í að koma nýjum myndum á netið, þið getið séð myndir frá Bostonarferðinni okkar Addíar í apríl undir Myndir.

2 ummæli:

Unknown sagði...

hljómar eins og hressandi vika í boston ;)
hihi
gaman að heyra að þetta virðist ganga vel :D
Núna verðuru að skella inn myndum af íbúðinni og helstu stöðum sem þú ert að dandalast á :D

Nafnlaus sagði...

Hæ Halla. Kíkti aðeins við á síðunni þinni. Gaman að sjá hvernig gengur í útlandinu ;o) Hafðu það gott.