23.8.07

Jæja, þá fer að líða að lokum annarrar viku í skólanum. Ég var dálítið þreytt í skólanum í dag þar sem ég fór á Publick House í gærkvöldi að hitta aðra MSF, MBA og MSA nema. Ég hitti alveg helling af nýju fólki þar sem fullt af amerískum nemum voru mættir á staðinn. Ég fór með Akki og Kamönu, var reyndar á leiðinni í háttinn þegar þær bönkuðu upp á hjá mér og drógu mig fram úr! Mjög gaman og var komin heim rétt fyrir miðnætti (sem er kannski ekkert svo slæmt nema þegar maður þarf að vakna kl. 6 til að ná strætó í skólann!). Hérna í BC eru pöbbakvöld á miðvikudögum.. til þess að halda upp á það að vikan er hálfnuð! Skil nú ekki alveg af hverju verið er að halda upp á það þar sem miklu lógískara væri að hafa þau á föstudagskvöldum þegar skólavikan er á enda! Svona er kaninn skrítinn...

Ólöf vinkona fór heim í gær :( Rosa gott að hafa hana, sérstaklega til að bera allan farangurinn og alla Target pokana upp á 4. hæð! Hún var reyndar mjög dugleg að versla sjálf og fór heim með ansi mikla yfirvigt.. Svona er að koma til Boston, alveg ótrúlegt hvað er hægt að eyða hérna!

Jæja, ég ætla að reyna að læra smá fyrir morgundaginn.. að lokum eru nokkrar myndir frá Boston:


Ég fyrir framan skólann minn:)

Húsið sem ég bý í.
Kamana (t.v.) og Akki (t.h.)




2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæjj =) Já það er svoldið skrýtið að hafa pöbbakvöld og halda uppá að vikan sé hálfnuð en það er náttla bara til að hafa ástæðu til að drekka haha =) En annars er ég byrjuð í skólanum Ms og það er bara brjálað að gera fullt af heimavinnu og strax byjuð að undirbúa mig undir próf og sonna hehe en við heyrumst bara =) bæjjj :*

Halla sagði...

Hæjjj.. vona að þér gangi vel í MS! Alveg ótrúlegt að þið skuluð vera byrjuð í framhaldsskóla! Sendi þér stærðfræðistrauma :) HK