1.9.07

Góðan og blessaðan..

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég skrifaði hér síðast. Fyrir það fyrsta er "orientation-ið" í skólanum loks á enda. Deginum í dag eyddum við úti í Thompson-eyju sem er í 20 mín fjarlægð frá Boston. Þangað sigldum við kl. 7:30 í morgun og fórum í leiki, klettaklifur og leystum alls konar þrautir sem eiga að gera okkur betur undirbúin fyrir hópavinnuna í skólanum. Halla kom ansi sólbrennd til baka og það kom mér í raun á óvart að ég skyldi brenna þar sem ég hef nánast sloppið við það frá því ég kom hingað! Á þriðjudaginn síðasta var "útlendingagrill" á vegum alþjóðaskrifstofu skólans og á miðvikudaginn fór ég í klukkutímasiglingu úti fyrir ströndum Boston sem er á vegum sömu samtaka, það var alveg frábært og kom skemmtilega á óvart hvað Boston er falleg borg séð af hafi úti.

Á morgun er fyrsti fótboltaleikur BC og Halla að sjálfsögðu búin að næla sér í season tickets! Með fótbolta á ég við "football" en ekki "soccer". Ég veit varla út á hvað leikurinn gengur en það skiptir ekki öllu máli, heldur að styðja sitt lið með tilheyrandi búningum, hrópum og köllum! Húllumhæið hefst á hádegi og leikurinn um miðjan dag. BC á víst að vera með mjög gott lið í háskólafótboltanum en það kemur allt í ljós á morgun. Á sunnudaginn ætlum við Kamu og Akki að halda matarborð fyrir 10 félaga okkar í skólanum. Á boðstólnum verður indverskur matur sem Akki ætlar að elda. Ég lofa að skella inn myndum eftir helgi.

Annars er bara allt gott að frétta. Ég er búin að hitta flesta þá sem eru með mér í MSF náminu. Þetta er ca. 25 manna hópur á aldrinum 24 - 39, alls staðar að úr heiminum og ca. 1/3 eru Kanar. Námið leggst bara vel í mig og er fyrsti "alvöru" skóladagurinn á miðvikudaginn næsta. Þá verður nú ekkert aftur snúið og vinnan hefst að alvöru.. en ég er farin að hlakka til enda búin að fá alveg nóg af samhristingsprógramminu sem er búið að vera síðustu 3 vikurnar!

Hitinn er ennþá að pirra mig og ég þakka guði á hverjum degi fyrir þann sem fann upp loftræstikerfi og viftur enda hefur þetta tvennt nánast bjargað lífi mínu síðustu daga. Reyndar er eitt jákvætt sem fylgir svona miklum hita: besti staðurinn til að eyða +30 gráðu dögum er inni í mollunum því þar er besta loftræstingin.. og ekki líður Höllu illa inni í mollunum, ónei!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ
Loksins fatta ég hvernig á að commenta hérna. En gott að þú skemmtir þér sem best og kynnist mörgu og skemmtilegu fólki. Væriru ekki til í að senda okkur smá af hitanum hingað... við getum sent þér rigningu í staðinn :)
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt.. þú segir svo skemmtilega frá. Gangi þér allt í haginn.
Kv. Sibba frænka

Nafnlaus sagði...

Já, vá ég er ógisslega sammála henni sibbu =) þú segir svo skemmtilega frá að maður bara bíður eftir að fá að lesa meira =) en vonandi gengur þér vel í skólanum og við hlökkum öll til að heyra í þér bæjj koss og knús. Fjóla