Jæja, kominn tími á blogg.. en vá hvað þetta er búin að vera skemmtileg helgi.. og reyndar alveg ótrúlega löng líka!! Byrjaði á fimmtudagskvöldinu en við Jing fórum á hverfispöbbinn okkar Roggies eftir prófið.. hringdum í nokkra aðila og eftir korter vorum við orðin um 10 talsins! Fengum okkur nachos og bjór og spjölluðum og svo var ég á leiðinni heim rétt fyrir miðnætti þegar hún Kamana vinkona mín birtist á Roggies ásamt vinkonu sinni en þá voru aðeins nokkrar mínútur í 24 ára afmælið hennar Kamönu. Við héldum því aðeins upp á það og ég fór því ekki alveg strax heim:)
Á föstudeginum þurfti ég aðeins að útréttast upp í skóla, kom svo við á Pinos á leiðinni og heim og sótti mér bestu pizzusneið í heimi, föndraði afmæliskort og kórónu fyrir afmælið um kvöldið og horfði á Food Channel sem er uppáhaldsstöðin mín hérna (hversu frábært er það að geta horft á matreiðsluþætti 24/7??). Svo var haldið út í Whole Foods og þar sem keyptir voru ostar og fleira gott og svo bjó Hallan til þessa flottu ostabakka fyrir afmælispartýið hennar Kamönu um kvöldið. Partýið var algjör snilld, og á eftir var farið í annað partý og svo þaðan niðrí bæ. Ég hendi myndum inn fljótlega..
Vaknaði alveg eeeeeldsnemma á laugardagsmorgninum, þreif íbúðina og lærði fyrir prófið sem ég er að fara í á morgun. Um kvöldið kom Jing og eldaði kínverskan mat hérna í íbúðinni minni og við buðum nokkrum studygroup-buddíum að koma að borða og horfa á Red Sox leik sem var í gangi.. rosa stuð:) Já þetta er búið að vera helgi í lagi enda komi tími á að lyfta sér aðeins upp eftir allan lærdóminn síðustu vikurnar!!!
Á morgun er próf í financial econometrics sem eiginlega blanda af fjármálum og tölfræði - eitthvað sem Halla á nú alveg að geta reddað sér í eftir alla kennsluna í HR. Ég ætla að reyna að ná eins og tveimur klukkutímum í lærdóm áður en ég fer í háttinn..
Já annað: Halloween er hérna í USA þann 31. október.. ég var ekkert smá farin að hlakka til - fyrsta og örugglega eina skiptið sem ég verð hérna á Halloween en hvað haldiði? ÉG ER AÐ FARA Í PRÓF ÞAÐ KVÖLD! þannig að það verður nú ekki mikið trick or treat á þessum bænum!! Bara fúlust...
Yfir og út:)
1 ummæli:
Hæ elsku besta systa i öllum heimi!!!!!gaman að heyra hvað það er mikið stuð hjá þér,þú átt það sko alveg skilið eftir svona mikinn lærdóm.Væri alveg til að vera ennþa hjá þér því það var svo gaman hjá okkur.Get ekki beðið eftir að þú komir heim um jólin. Músí Músí kossar og knús Ps.Geiri biður að heilsa
Skrifa ummæli