1.11.07

Góðan dag, góðan dag

Gerist morgunmatur íslenskari en einmitt sá sem ég er að borða núna? skyr og flatkökur? ójá.. uppáhaldsmorgunmaturinn minn hérna úti:)

Annars er bara allt fínt að frétta. Einkunnirnar úr prófunum búnar að skila sér í hús og Hallan bara þokkalega sátt. Nú er ég á fullu í verkefnavinnu og verð næstu vikuna.. og reyni að sinna öllu hinu sem fékk að sitja á hakanum: þvo þvotta, þrífa, sinna vinunum etc etc.

Svo er stanslaus gestagangur hjá mér.. ekki leiðinlegt það! Addí og Geiri nýfarin heim, Örn frændi að koma á morgun og mamma og pabbi koma á Thanksgiving og verða í tæpa viku:)

Annars er aðeins farið að kólna hérna úti.. loksins orðið eðlilegt hitastig fyrir Íslendinginn í mér.. Akki og Kamana eru að krókna því 10 gráðu hiti er nú ekki daglegt brauð í Nepal og Dubai! Þær urðu nú skrítnar í framan þegar ég sagði þeim að 10 gráður væri nú bara týpískur sumarhiti á Íslandi!! heheheeh

Jæja, busy dagur framundan: þvo tvær vélar, elda hádegismat (ójá elda: ég er byrjuð á því aftur!!) og svo hópahittingur á campus kl. 4.

Yfir og út.
HK

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan, til hamingju með prófin! Gott að vera búin og fá tíma fyrir aðra hluti. Mikið hlakka ég til að hitta þig! Ég tel dagana!
Bæjó
mamma

Halla sagði...

Það verður líka gaman að fá ykkur og ég er búin að búa til þvílíkt flott plan fyrir okkur þessa daga sem þið verðið hér!! Knús..:)