Jæja, annasamur dagur að baki, skilaði af mér einu verkefni og rumpaði af einu prófi í skuldabréfum núna í kvöld... Næsta próf er svo í næstu viku þannig að núna get ég andað smá þangað til ég helli mér út í afleiður og áhættustýringu:)
Fréttir: Ég er búin að panta mér ferð til Las Vegas þann 4. mars! Jú þið lásuð rétt, ég ætla að eyða spring break í borg glamúrsins. Ég fer með Kamönu, Aki og Sanji og er planið að gista þar í 4 nætur, skoða Grand Canyon, kíkja á klúbba, í spilavítin og að öllum líkindum ætlum við á einhverja sýningu. Mig langar mest að sjá Love-Bítlasýninguna hjá Cirque de Soleil en ég á eftir að bera það undir stelpurnar. Og að sjálfsögðu verður maður að taka þetta með trompi og gista á einu flottasta hótelinu á Strip-inu, Mandalay Bay. Finnst ykkur eðlilegt að flug og hótel kosti undir 35 þús? Mér finnst það alveg fáránlega ódýrt... og ódýrara en að fljúga frá Reykjavík til Akureyrar og gista á Hótel KEA! hhaha... Gjöf en ekki sala - eins og vitur kona sagði eitt sinn!!!
Svo eru Sibba frænka og Stebbi hennar spúsi að koma að heimsækja mig um páskana og við ætlum að skella okkur til New York í tvo daga.. úúúú hlakka til:) Kannski ég nái að líta Central Park augum í þessari ferð! (hvaða vitleysingur fer til NY og dvelur þar í 4 daga án þess að labba í gegnum Central Park? Jú hún Halla þegar hún fór til NY fyrir tveimur árum!!)
Jæja, ég ætla að eyða eins og klukkutíma með honum Horatio í Miami áður en ég fer að sofa.. hann er að leysa eitthvað svaka morðmál, alveg ótrúlega töff með sólgleraugun sín:)
HK
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Eeeeelsku allra besta Halla mín
Hvenær kemurðu eiginlega heim til mín...þú veist ekki hvað ég sakna þín mikið...það er bara EKKERT gaman að eiga frænku í útlöndum! Puhuh! Annars allt gott af mér að frétta. Er farinn að sofa eins og ljós, kominn með tvær tennur og bara held áfram að bræða mannskynið :) Mamma og pabbi botnlaust stolt af mér og segja mig vera verulega duglegan ...
Þykir óendanlega vænt um þig elsku auntí og ég hlakka svoooooooo til að sjá þig. Veit að mamma er líka hálfvængbrotin hérna heima án þín en við höldum bara áfram að telja niður dagana...
Jæja, best að fara að drífa sig í að gera skattframtalið fyrir mömmu og pabba!
Knús og kossar, þinn vinur og litli frændi,
Ernir Daði :)
Hæ hæ, en æðisleg gleraugu og þau klæða þig rosalega vel! En hvað þetta verður flott frí hjá ykkur þarna í Vegas! Ég var að skoða heimasíðuna hjá hótelinu og þetta er alveg svakalega fínt hótel!! En skemmtið ykkur nú vel í Las Vegas og ekki gleyma að fara varlega.
mamma
Elsku Ernir Daði! Auntí Halla saknar þín líka! og hlakkar ekkert smá til að fá hana múttu þína út til sín í sumar!
Takk mamma mín:) Ég er rosa ánægð með gleraugun! Addí og Geiri völdu vel! heheeheheh.. og að sjálfsögðu fer ég varlega, eins og alltaf:)
Skrifa ummæli