Hallan heilsar úr 20 gráðu hita og glampandi sól hér í Boston. Alveg ótrúlegt hvað borgin lifnar við með hækkandi sól. Hallan búin að taka fram hlíraboli og sandala og alveg tilbúin í sumar eftir laaaangan vetur!!
Annars er bara allt ljómandi gott að frétta. Afmælið mitt var á miðvikudaginn var - takk kærlega fyrir allar kveðjurnar og afmælissönginn amma! Ótrúlegt hvað margir mundu eftir þvi án þess að hafa mig til að minna sig á! hahahaa... Afmælisdagurinn minn byrjaði 2 mínútur eftir miðnætti þann 16. þegar Kamana og Sanji komu syngjandi með afmælisköku með nafninu mínu á, blóm og pakka! Eftir kökuát var haldið í háttinn enda stór og langur dagur framundan. Við byrjuðum daginn á Starbucks og fengum okkur frappuchino enda sólríkur og heitur dagur (besta veðrið þetta árið, að sjálfsögðu!). Fórum svo í Gallería moll enda þurfti Halla að fá sér dress fyrir kvöldið. Átti að sjálfsögðu ekki í erfiðleikum með að eyða peningum og fann sér aaaaaðeins meira en bara dress fyrir kvöldið! Fengum okkur svo malasískan mat í hádegismat - very nice. Um kvöldið áttum við pantað borð á Stella sem er einn af mínum uppáhaldsveitingastöðum - alveg geðveikur matur þar. Átti þar alveg frábært kvöld með stelpunum (Kamönu, Sanji, Shetul, Mömtu, Jing og Behan) og mikið hlegið! Undir lokin komu þjónanir með eftirréttinn minn, tiramisu, með kerti í allir sungu! Já já maður verður að fá afmælissöng þó svo að maður sé orðinn alveg 25 ára (hmmm)!! Eftir matinn kíktum við út á lífið en var þó komin heim í háttinn frekar snemma:) Míns fékk alveg þrjá afmælissöngva á afmælinu sínu! toppiði það!!
Í gær fór ég svo á Red Sox leik. Maður getur nú ekki búið í Boston án þess að sjá eftirlætislið allra spila. Og vá hvað var gaman! Leikurinn er alveg í rúma 3 tíma en það sem gerir þetta svo skemmtilegt er stemningin á vellinum: allir syngjandi kátir og svo voru Red Sox að spila mjög góðan leik sem spillti nú ekki fyrir!
Svo er skólinn á fullu núna, ég er með tvær ritgerðir sem ég er að vinna í og tvö lokapróf 1. og 5. maí. Styttist svakalega í að önn nr. 2 endi - alveg ótrúlegt hvað þetta er búið að vera fljótt að líða!!
... og nokkrar myndir í lokin úr afmælisdinnernum!
Eftirrétturinn kom alveg skemmtilega á óvart!
Ég og Sanji
Kamana, Shetul og Sanji
Mamta, ég og Jing
2 ummæli:
Elsku Halla mín.
Gaman að sjá og heyra hvað þú skemmtir þér vel á afmælinu þínu úti og að hægt sé að treysta þessum útlensku vinkonum fyrir því að fagna rækilega með þér. Við tökum svo ,,the icelandic way" að ári liðnu eins og okkur einum er lagið.
Gangi þér rosalega vel í öllum verkefnunum og prófunum, efast ekki um að þú standir þig eins og hetja eins og alltaf :)
Knús, kram og kossar.
Þín saknandi besta vinkona,
Aldís Arna
p.s. komdu heim...well, mátti reyna!
Hæ hæ... vá hvað afmælisdagurinn þinn var skemmtilegur.. svona á alltaf að gera á afmælisdaginn sinn.. ég skil ei fólk sem gerir aldrei neitt til að halda uppá daginn... en bestu kveðjur og gangi þér rosa vel í skólanum.
Kv. Sibba
Skrifa ummæli