Þá er Eurovision búið og 14. sæti staðreynd. Alveg fínt bara held ég. Held þó samt að Evrópu hafi verið eitthvað illt í eyrunum í kvöld.. að velja þetta rússneska er auðvitað bara algjör steypa. Hver ber fram "impossible" eins og hann gerði? Dísus..
Jæja, síðustu vikur hafa verið algjört heaven. Veðrið hefur verið algjört yndi, búin að hafa fjölskylduna í heimsókn, ég "útskrifaðist" og er bara búin að gera fullt af skemmtilegum hlutum með vinum og fjölskyldu hérna úti. Takk kærlega fyrir allar hamingjuóskirnar og ég lofa að setja inn myndir þegar ég er búin að fá þær úr myndavélunum þeirra m&p og Addíar. Á þó eina mynd af mér í outfittinu!
Svo er ég byrjuð í skólanum aftur. Þriðja önnin hafin og ef allt gengur eftir verð ég í tímum fram í byrjun ágúst. Leggst bara vel í mig að vera í skólanum í sumar... dáldil tilbreyting!!
Jæja, ætla að fara að gera eitthvað að viti. Búin að liggja yfir Eurovision síðustu klukkutímana:)
HK
1 ummæli:
Elsku Halla mín, þú ert algjört æði í múnderingunni! Það var yndislegt að vera hjá þér, fá að vera með í útskriftinni þinni og hitta alla vini þína. Gangi þér vel í náminu og með allt. Mamma.
Skrifa ummæli