20.9.07

Hæhæ

Þá er þriðja skólavikan nánast á enda (jiminn hvað þetta líður hratt!) og ég ætti að vera að læra en einhvern veginn tekst mér að gera allt annað. Ganga frá þvotti, spjalla á msn og horfa á spjallþáttinn með Ellen sem er orðinn uppáhaldsþátturinn minn hérna úti!

Eftir slétta viku koma vinkonur mínar úr LSR í heimsókn (Innrásin mikla eins og við köllum það) hingað í Ameríkuhrepp. Mér skilst á þeim að þær ætli að láta til sín taka í búðunum þannig að kannski ég fari að hafa samband við mollin og biðji þau að fylla á allar hillur og rekka!! Eftir tvær vikur koma Addí og Geiri til mín! Ohh hvað ég er farin að hlakka til... Skemmtilegir tímar framundan :)

Annars eru stelpurnar að tala um að fara í kariókí í kvöld. Ég segi nú bara pass enda er röddin mjög rám eftir allt kvefið undanfarna daga. Kannski ég taki bara Joe Cocker á þetta?

Yfir og út..

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehehe já það má sko alveg kalla þetta innrásina miklu ;-) Það væri efllaust ekki vitlaust að ræða við mollin áður en við komum, kaupglaðar eins og við erum ;-)
Á ég að trúa því að þú fari ekki í kariókí í kvöld með stelpunum, iss þú myndi rúlla þeim upp eins og í Barce forðum daga :-)
Síja
Inga

Nafnlaus sagði...

Halló elsku ungfrú Ameríkuhreppur og nágrenni :) Jemin eini hvað minns hlakkar til að mæta á svæðið og taka til hendinni í þessum blessuðu verslunum. Var hvíslað að mér að það þyrfti eitthvað að rýma til fyrir jólavörunum og auðvitað býð ég fram aðstoð mína í það. Hlakka til að hitta þig krúttið mitt og fá Hölluskammtinn beint í æð.. Sjáumst sprækastar

Ásgeir Bjarni sagði...

Mig langar ekkert að koma út með stelpunum sko ... bara ekki neitt ... hnuss

Halla sagði...

Gvod tad verdur svo gaman ad fa ykkur esskurnar minar! Og Harpa: ad sjalfsogdu langar tig ekkert enda omurlegt i Boston (vid tekkjum tad af eigin raun), ekkert a gera, ekkert haegt ad versla, omurlegt vedur... hihihi. Tu kemur bara seinna..hvad segirdu med vorid??

Nafnlaus sagði...

Já þetta verður skrautlegt hjá ykkur öllum. Ætli þetta verði ekki Extreme Shopping þessa daga, megið samt ekki gleyma að hafa tjútta aðeins :)
En takk kærlega fyrir að taka við pakkanum Halla.... þú ert snillingur.

Happy shopping.

Robbi Önnu

Anna sagði...

Gott að vita loks af blogginu þínu svo maður geti fylgst með þér í Kanalandinu skvís ;0)