8.10.07

Hæ hó

Við systurnar og Geiri sitjum hérna uppgefin eftir að hafa pakkað niður um 100 kílóum af farangri ofan í töskur.. jú þið lásuð rétt, Addí og Geira tókst að kaupa ríflega 100 kíló af fötum, skóm, snyrtivörum, skarti og búsáhöldum... gvöð hvað ég er fegin að þurfa ekki að bera töskurnar þeirra niður fjórar hæðir á morgun!!!! Þau eru að fara á morgun (grenj) þannig að næstu dagar eiga eftir að verða einmannalegir hjá mér. Það er nú kannski allt í lagi þar sem fjölmörg verkefni bíða eftir mér. Í næstu viku byrja hjá mér miðannarprófin og svo þarf ég að vera dugleg að vinna fyrir styrknum mínum á næstunni þar sem ég er loksins búin að fá úthlutað verkefni. Það var nú reyndar ekki af verri endanum: Ég á að aðstoða prófessorinn í Financial Econometrics, prófarkalesa námsefnið hans og búa til skilaverkefni! Dáldið fyndið þar sem ég sit þennan kúrs sjálf.. en við sjáum hvernig þetta gengur:)

Annars eru síðustu vikur búnar að vera alveg frábærar enda alveg rosalega gaman að fá fólk í heimsókn og fá að sýna þeim borgina... og ótrúlegt en satt hafa síðustu vikur líka verið frábærar fyrir debetkortið mitt! Mér tókst að halda að mér höndum og versla aðeins ítrustu nauðsynjar (jújú, við köllum föt og fylgihluti nauðsynjar ef þau eru keypt í hæfilegu magni!). Búin að fara 3 ferðir í target, 3 ferðir í Galleria moll og óteljandi ferðir niðrí miðbæ síðstu 2 vikurnar, ekki leiðinlegt það!

Jæja, við ætlum að fara út og fá okkur eitthvað að borða... allir orðnir svangir eftir nokkurra klukkutíma pakkerí!

Leiter

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æjj en gaman að fá systur sína og geira svona til sín =) en vá 100kg :O vá það er mikið lokuðu ekki búðarstarfsmennirnir búðinni bara fyrir þau svo þau gætu verslað í friði hehe =) en ég heyri ég þér seinna. gaman að lesa bloggið þitt :*