Heil og sæl
Boston er búin að vera ansi blaut í dag, rok og rigning a la Ísland.. ég tók regnhlífina með mér í skólann og ég hélt að ég myndi bara takast á loft. Jing vinkona mín sem var samferða mér í skólann fékk þarna beint í æð af hverju Íslendingar nota yfirleitt ekki regnhlífar í íslenskri rigningu!!
Annars var ég að koma úr Investments tíma. Kennarinn er alveg frábær, ca. fimmtugur einhleypur kall, eldrauður í framan og mætir yfirleitt með skræpótt bindi í tíma. Hann segir okkur endalausar sögur og tekst einhvernveginn alltaf að flétta námsefninu inn í þær. Í hverjum tíma fáum við heyra af því hversu frábært 50" sjónvarpið hans sé og að eina Mrs. Barry í hans lífi sé mamma hans.. bara fyndinn kall!!
Annars er bara allt gott að frétta. Fór í próf í gær sem gekk bara vel. Svo er próf á þriðjudaginn og annað á fimmtudaginn í næstu viku. Er reyndar með smá hnút í maganum yfir þriðjudagsprófinu þar sem efnið er MJÖG þungt en við vonum bara það besta - verð bara dugleg að læra um helgina! Krakkarnir í studygrúppunni minni sem ég hitti í hverri viku voru að tala um að líta aðeins upp úr bókunum um helgina og gera eitthvað saman.. ég sagði bara pass og sagðist ætla að læra um helgina. Þá fékk ég spurninguna: Are you really gonna study for three whole days? Dah Yes! Þeim fannst ég eitthvað galin :) Kannski er þetta bara ég en ég fer ekki í mollin eða í bíó með tvö próf hangandi yfir mér...
Svo langaði mig bara að óska henni Ólöfu vinkonu minni til hamingju með 20+ ára afmælið um síðustu helgi. Ég keypti handa þér afmælisköku en ákvað bara að borða hana sjálf í staðinn fyrir að senda hana heim...
Og Ernir Daði: til hamingju með flotta nafnið þitt! Það verður nú samt skrítið að kalla þig ekki litlakúts lengur:) Þú sendir kveðjur á gamla settið og óskar þeim til hamingju með frábært val á nafni!
Jæja... ég ætla að horfa á síðustu mínúturnar af Pretty Woman. Lokaatriðið þegar hann klifrar upp brunastigann með blómin... ahhh.. bara æði:)
HK
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hehe æji þú ert svo dugleg =) en já með pretty woman ég var að kaupa hana um daginn og ég og pabbi horfðum á hana :D bara snilldar mynd skomm... =) svo fyndin og rómantísk :P bæbæ :*
þú ert best, gaman að lesa um þig.knús og kossar.
H�h� ��� ert besta vinkona � heiminum! Miss you alot.
Skrifa ummæli