Ein hérna alveg að deyja úr blogg-leti en held að það sé nú tími til kominn að setja inn einhverjar fréttir af mér. Ég sem sagt búin að fara til Vegas og svo New York í síðustu viku. Alveg brilliant gaman. Sáum Hairspray á Broadway. Löbbuðum um Central Park. Versluðum á Canal Street og míns gerði alveg svaka góð kaup á Coach töskum. Röltum um Soho og Little Italy. Shoppuðum pínu á Herald Square. Borðuðum rosa góðan mat. Alveg brilljant ferð í alla staði - nema mér tókst að næla mér í eitthvað leiðindar kvef á leiðinni heim. Alveg týpískt. Rútan var full af hóstandi og hnerrandi fólki og ég sjálf var orðin hnerrandi og hóstandi á laugardeginum - og er enn. Páskarnir liðu alveg ótrúlega hratt þar sem ég var bara lærandi - en fékk þó þetta risa Nóa páskaegg að heiman sem Sibbus og Stebbi komu með. Takk æðislega:)
Svo var ég með partý fyrir krakkana úr skólanum á laugardeginum fyrir páska. Alveg svaka stuð og veitingarnar mínar voru etnar upp til agna! Annars er lífið bara búið að ganga sinn vanagang. Nóg að gera í skólanum og svo á föstudaginn erum við að fara í company visit til John Hancock sem er fjármálafyrirtæki hér í Boston sem yours truly skipulagði. Alltof góð þátttaka þar sem um 30 manns skráðu sig en aðeins 10 komast að. Er samt að bíða eftir svari um að fleiri komist með..
Og vegna fjölda áskoranna (hahaha) þá set ég inn nokkrar myndir af íbúðinni post breytingar!
Reyna að gera smá huggulegt hérna - þetta er sko rauði sófinn minn eftir yfirhalningu!
8 ummæli:
about bloody time ad það kæmu nýjar myndir!! og hvenær a svo að bjóða manni i heimsókn aftur til að sjá breytingar?
Takk æðislega fyrir alveg æðislega páska Halla mín :) Íbúðin er sko alveg æðisleg... svefnsófinn mjög góður.. þetta gæti ekki verið betra sko :)
uuu.. gleymdi að kvitta en nú kvitta ég á þetta komment sem gildir líka fyrir fyrra komment...
kv. Sibba
Örn: síðan hvenær þarf að bjóða þér í formlega heimsókn? Ég veit ekki betur en þú mætir bara á svæðið.. hahaha
Sibba: já takk sömuleiðis fyrir alveg frábæra viku. Ég skemmti mér svo vel.. NY var alveg að gera sig!
Vá, orðið svaka næs hjá þér. Nú þarf ég að dröslast til að tala almennilega til heima hjá mér og skella inn myndum ;0) kv. frá Fróni með snjó í dag!
til hamingju með daginn :D
Elsku Halla til hamingju með daginn og takk fyrir síðast. Svakalega var gaman að sjá þig í afmælinu hennar mömmu þinnar. Vona að þú eigir skemmtilegan afmælisdag, allir biðja að heilsa. Ester frænka
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Projetores, I hope you enjoy. The address is http://projetor-brasil.blogspot.com. A hug.
Skrifa ummæli