Kvöldið...
Þá er ég loksins búin með þriðja og síðasta prófið.. og ég lofa, ég skal ekki tala meira um próf.. amk ekki þangað til í desember! Ég sit heima og horfi á fréttirnar, miklar skógareldar í San Diego og Schwartsenegger með yfirlýsingar í fréttunum. Red Sox komnir í World Series. Þetta eru highlight dagsins í Ameríkunni.
Þegar maður er í prófum er ótrúlegt hvað huganum tekst alltaf að reika eitthvað annað. Um daginn fór ég að hugsa um hvað lífið hefur breyst mikið hjá mér síðustu vikurnar.. ekki langt síðan vinnan í LSR og kennslan í HR tók nánast allan minn tíma. Sem dæmi um drastískar breytingar (fyrir utan nýjan skóla, nýtt húsnæði, nýja heimsálfu etc..):
Hallan er orðin mikill aðdáandi almenningssamgangna. Hún sem hafði ekki stigið fæti í strætó síðan hún fékk bílpróf. Eins og ég elskaði bílinn minn út af lífinu þá er alveg ótrúlegt hversu gott er að nota bara strætó, lestina og leigubíla stökum sinnum.. og líka miklu ódýrara!
Hallan eldar ekki lengur. Hún sem eeeelskaði að elda og gerði það amk. þrisvar í viku áður en hún kom út. Það er margt sem veldur: Ódýrara að fara út að borða og svo er alveg óstjórnlega leiðinlegt að elda bara fyrir einn. Helsta ástæðan er þó held ég sú að ég er í skólanum á kvöldin þannig að ef ég ætla að elda þá þarf ég að gera það í hádeginu eða um helgar... Ég ætla þó að reyna að bæta úr þessu enda komin með fullt af góðum uppskriftum eftir að hafa horft á Giada í Everyday Italian á Food Channel síðustu daga!
Hallan er orðin ótrúlega stundvís. Jú þið lásuð rétt, hún sem var alltaf fashionably late er bara orðin púnktúal... Hef aldrei mætt of seint í skólann, hef baaaara einu sinni mætt of seint í hitting í skólanum (af trilljón hittingum!) og einu sinni of seint út að borða.. that´s it! Klapp klapp! Frábær árangur á rúmum tveimur og hálfum mánuði!
Hallan er orðin algjör nískupúki. Sem dæmi má nefna að 10 dollarar (600 kall) í mat er okur. Samloka á Vegamótum heima kostar 1200 kall og ekki setti maður það fyrir sig forðum daga. Ég kemst af heilu dagana á nokkrum hundraðköllum.. þetta er ótrúlegt!
Jæja.. farin í háttinn.. geisp
nætí næt
HK
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ Halla mín,
gaman að sjá hvað þér gengur vel í Boston, alltaf verið draumur minn að vera þar.
Góða skemmtun á Halloween, er hún ekki stærst einmitt þarna á þessum slóðum?
Halla mín Ég sakna þín
Kveðja Amma
Diljá: gaman að heyra í þér! Jú Halloween er alltaf stór hér.. og Thanksgiving reyndar líka.
Amma: já ég sakna þín líka.. og laugardaganna. Nú eru ekki nema nokkrar vikur þangað til ég kem heim í frí:)
Skrifa ummæli